Lúka og Brynhildur

Lúka var stofnað í febrúar 2009 og hugmyndafræði þess snýst um gæði og gleði

Hönnuður og framkvæmdastjóri er Brynhildur Þórðardóttir. Hún er með BA Í textíl- og fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og með meistaragráðu í tæknilegum textílum og atgervisfatnaði. Hún hefur m.a. unnið sem sjálfstætt starfandi fatahönnuður fyrir ZO•ON og Varma. Brynhildur hefur einnig starfað sem búningahönnuður fyrir Poppoli kvikmyndagerð og hefur verið tilnefnd til Eddu verðlaunanna fyrir verk sín. Hún hefur unnið sem listrænn ráðunautur fyrir myndlistarmenn og hönnuði, gert auglýsingar fyrir stofnanir og fyrirtæki, sett upp sýningar fyrir Fatahönnunarfélag Íslands, Poppminjasafn Íslands ofl. Í dag er Brynhildur að sinna eigin hönnun og kennslu, veitir innanhúsráðgjöf, vinnur að vöruþróun fyrir ýmsa aðila og hannar sokka fyrir Smart Socks.

Lúka Art & Design er íslenskt hönnunarfyrirtæki. Við erum búin að vera starfandi með hléum síðan í byrjun árs 2009. Hugmyndafræði fyrirtækisins hefur alltaf snúist um gæði og gleði, vörurnar okkar eru litríkar og líflegar og stefnan var strax sett á framleiðslu hérlendis og starfaði fyrirtækið í fyrstu á mörkum myndlistar og hönnunar. Lúka hélt m.a. nokkrar myndlistarsýningar og setti upp innsetningu í GalleríBOXi á Akureyri sem hét Prjónaheimur Lúka. Fyrirtækið tók einnig þátt í sýningum á vegum Fatahönnunarfélags Íslands og var með í Showroom Reykjavík nokkrum sinnum og sýndi á Reykjavik Fashion Festival. Lúka hefur líka tekið þátt í Copenhagen Fashion Week og stefnir á fleiri vörusýningar í Evrópu. Í dag býður Lúka upp á ýmis konar heimilisvörur s.s. teppi, skurðarbretti, framreiðslubakka, spegla og kertastjaka.

Huggulegt líf Lúka

Línan Huggulegt líf Lúka snýst um notalegt andrúmsloft, innri ró og frið. Um er að ræða umhverfisvænan og sjálfbæran húsbúnað sem framleiddur er hérlendis og býður upp á samþætt heildarútlit fyrir heimilið. Hugmyndin með vörunum er að auðvelda okkur að upplifa gæðastundir, hvort sem er með sjálfum okkur eða í félagsskap annarra. Huggulegt líf línan var fyrst frumsýnd á HönnunarMars 2019 og hefur hún síðan verið í áframhaldandi þróun undanfarin ár. Við bjóðum m.a. upp á kertastjaka, teppi, bretti og bakka, spegla og borð. Vörurnar eru framleiddar úr náttúrulegum hráefnum á borð við birki, eik og ull en einnig stáli, steypu og gleri. Unnið er með róandi liti þar sem brúnir tónar eru ríkjandi ásamt rauðum, gulum, bláum og gráum. Formin og mynstrin í línunni eru öll fengin úr kennimerki fyrirtækisins en hringformið fær að vera með þar sem það er hið fullkomna form.